Framkvæmd fjárlaga 2020
Frumkvæðismál (2002001)
Fjárlaganefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
27.01.2021 | 37. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmd fjárlaga 2020 Til fundarins komu Kjartan Dige Baldursson, Kristinn Hjörtur Jónasson og Viðar Helgason frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þeir fóru yfir framkvæmd fjárlaga og svöruðu spurningum nefndamanna. Einnig var rætt um verklag við framkvæmd fjárlaga og hvort og þá með hvaða hætti mætti bæta það. |
27.02.2020 | 45. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmd fjárlaga 2020 Til fundarins komu Guðrún Gísladóttir, Guðrún Gunnarsdóttir og Guðmundur V. Friðbjörnsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Þau fóru yfir áhættumat ráðuneytisins og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
27.02.2020 | 45. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmd fjárlaga 2020 Til fundarins komu Ingilín Kristmannsdóttir og Sigurbergur Björnsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Þau fóru yfir áhættumat ráðuneytisins og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
24.02.2020 | 43. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmd fjárlaga 2020 Til fundarins komu Viðar Helgason, Kjartan D. Baldursson og Kristinn Hjörtur Jónasson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þeir lögðu fram minnisblað ráðuneytisins dags. 17. febrúar 2020 um áhættumat vegna framkvæmdar fjárlaga 2020 ásamt viðauka 1 og viðauka 2. Þeir fóru síðan yfir áhættumatið og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þess. |
05.02.2020 | 40. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmd fjárlaga 2020 Til fundarins komu Ásta Valdimarsdóttir, Runólfur Birgir Leifsson, Dagný Brynjólfsdóttir og Guðmann Ólafsson frá heilbrigðisráðuneytinu. Þau fóru yfir fyrirkomulag á eftirfylgni gildandi heilbrigðisstefnu. Bráðabirgðauppgjör Landspítalans fyrir árið 2019 var kynnt ásamt rekstraráætlun spítalans fyrir árið 2020 og áætluð þróun höfuðstóls hans árin 2020-2022. Einnig svöruðu þau spurningum nefndarmanna. |